top of page

Sáttamiðlarakvöld

Writer: Sátt
Sátt
10 minutes ago
1 min read

Vel heppnað sáttamiðlarakvöld var haldið í byrjun nóvember og þakkar stjórn Sáttar félagsmönnum innilega fyrir góða mætingu og gefandi samtal.

Markmið kvöldsins var að efla tengsl innan félagsins og heyra sýn félagsmanna. Einnig að skoða hvernig hægt sé að nýta þekkingu og reynslu sáttamiðlara enn betur til framtíðar. Það mætti frábær hópur sáttamiðlara og voru umræðurnar bæði skemmtilegar og uppbyggilegar, raunar svo góðar að strax var ákveðið að halda annað sáttamiðlarakvöld eftir áramót. Vonandi sjáum við enn fleiri sáttamiðlara þá, hlökkum til.


 
 
 

Comments


​Sátt, félag um sáttamiðlun

Sátt er fagfélag á sviði sáttamiðlunar sem vinnur að kynningu, þróun og eflingu sáttamiðlunar á Íslandi. Best er að hafa samband við félagið með tölvupósti. 

Netfang: satt@satt.is

Vertu með! 

Sátt sameinar fólk sem vill stuðla að framgangi sáttamiðlunar og uppbyggilegri úrlausn ágreiningsmála á Íslandi. Fagfólk getur sótt um aðild að félaginu og einstaklingar og fyrirtæki sem vilja styðja markmið þess geta gerst velunnarar.

© Sátt, félag um sáttamiðlun 2019 

bottom of page