top of page

Ný stjórn Sáttar

Writer: Sátt
Sátt
1 hour ago
1 min read

Á aðalfundi Sáttar, sem haldinn var þann 27. maí sl. í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði, var kjörin ný stjórn félagsins og ný lög samþykkt.   

Í nýrri stjórn sitja Þórhildur Kristjánsdóttir formaður, Ína Sigurðardóttir varaformaður, Ásta Kristjánsdóttir ritari, Aðalsteinn Leifsson gjaldkeri og Sigþrúður Erla Arnardóttir meðstjórnandi. Í varastjórn voru kjörnar Lilja Bjarnadóttir og Stefanía Halldórsdóttir (Nína).   

Á fundinum kvaddi stjórnin Vilborgu Bergman og þakkaði henni innilega fyrir gott og farsælt samstarf í stjórn félagsins. Við bjóðum nýja stjórnarmenn hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til spennandi verkefna á komandi misserum.

 
 
 

Comments


​Sátt, félag um sáttamiðlun

Sátt er fagfélag á sviði sáttamiðlunar sem vinnur að kynningu, þróun og eflingu sáttamiðlunar á Íslandi. Best er að hafa samband við félagið með tölvupósti. 

Netfang: satt@satt.is

Vertu með! 

Sátt sameinar fólk sem vill stuðla að framgangi sáttamiðlunar og uppbyggilegri úrlausn ágreiningsmála á Íslandi. Fagfólk getur sótt um aðild að félaginu og einstaklingar og fyrirtæki sem vilja styðja markmið þess geta gerst velunnarar.

© Sátt, félag um sáttamiðlun 2019 

bottom of page