top of page

Sáttamiðlun

Hvað er sáttamiðlun?

Sáttamiðlun er leið til að leysa ágreining þar sem tveir eða fleiri aðilar vinna saman að því að finna lausn. Aðilar taka þátt af fúsum og frjálsum vilja og öll samskipti fara fram í trúnaði.

Með aðstoð óháðs og hlutlauss sáttamiðlara fá aðilar tækifæri til að ræða málin í öruggu og skipulögðu umhverfi. Markmiðið er að þeir komist sjálfir að samkomulagi sem tekur mið af þörfum og hagsmunum allra sem eiga hlut að máli. 

Lausn deilunnar sett í forgang

Sáttamiðlun er notuð í auknum mæli af fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum. Deilan getur t.d. verið milli fyrirtækja, vinnuveitanda og starfsmanns, nágranna eða fjölskyldumeðlima.

Í sáttamiðlun er áhersla lögð á að finna lausn og aðilarnir sjálfir gegna lykilhlutverki í ferlinu. Ólíkt því sem gerist fyrir dómstólum hafa aðilar meira svigrúm til að móta lausn sem hentar aðstæðum þeirra og þörfum. Jafnvel þótt mál hafi þegar verið höfðað fyrir dómi getur dómari vísað því í sáttamiðlun ef hann telur það geta stuðlað að farsælli niðurstöðu.

Sáttamiðlari hjálpar aðilum að skilja betur sjónarmið hvors annars, greina þarfir sínar og finna sameiginlega hagsmuni. Með sáttamiðlun er oft hægt að komast hjá langdregnum dómsmálum og ná fram lausn á skemmri tíma. Lögfræðingar eða aðrir sérfræðingar geta tekið þátt í ferlinu ef aðilar óska þess.


Sáttamiðlun fylgir yfirleitt þessu ferli: 

  • Aðilar sammælast um að leysa ágreining sinn með sáttamiðlara.

  • Aðilar hittast ásamt sáttamiðlara, yfirleitt á hlutlausum stað.

  • Aðilar lýsa upplifun sinni af ágreiningnum og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

  • Þarfir og hagsmunir aðila eru ræddir.

  • Möguleikar til lausnar eru skoðaðir.  

  • Lausn er mótuð í sameiningu út frá umræðum aðilanna.

  • Aðilar komast að samkomulagi.

​Sáttamiðlarinn sér til þess að allir fái tækifæri til að tjá sig, að hlustað sé á sjónarmið allra og að umræður fari fram á uppbyggilegan hátt. Viðskiptalegur ágreiningur leysist oft á einum til tveimur fundum, eftir umfangi deilunnar. Fjölskyldutengdur ágreiningur getur krafist fleiri funda, sem eru þó gjarnan styttri.

Hvernig gengur sáttamiðlun fyrir sig?

VIRÐING

Sáttamiðlari aðstoðar aðila við að leysa deiluna sín á milli. Það gerir hann með umræðum og með því að mæta þörfum aðila eins vel og hægt er. Þess vegna er lausn í sáttamiðlun oft betri en dómur eða ákvörðun sem er tekin af þriðja aðila.

ALLIR SIGURVEGARAR

Í sáttamiðlun þarf enginn að tapa þegar áhersla er lögð á samtal og sameiginlega lausn. ​Það er ein af ástæðunum fyrir því að margir velja sáttamiðlun fram yfir dómstóla.  

EKKI RÁÐGJAFI

Sáttamiðlarinn leysir ekki deiluna eða gefur ráð, heldur leitast hann við að tryggja að hlustað sé á aðila og að sjónarmið þeirra komi fram. Aðilarnir sjálfir eiga samtalið og lausnina. Lögfræðingar aðila geta veitt ráð á meðan á sáttamiðlun stendur ef svo ber undir.

SJÁLFVILJUGIR AÐILAR

Aðilar geta slitið sáttamiðlun hvenær sem er, þar sem ferlið er valfrjálst.

Samanburður úrræða

Lausn ágreinings með sáttamiðlun:
 

  • Sáttamiðlun er lausnamiðuð

  • Markmiðið er samkomulag sem báðir aðilar samþykkja

  • Sameiginlegur ágreiningur kallar á sameiginlega lausn

  • Tekið er tillit til beggja aðila

  • Deiluaðilar bera sjálfir ábyrgð á niðurstöðu

  • Deiluaðilar gegna lykilhlutverki í ferlinu

  • Áhersla er lögð á möguleika til lausnar

  • Áhersla er lögð á hagsmuni og þarfir aðila

  • Horft er til framtíðar

  • Ferlið er oft fljótlegra og ódýrara

Lausn ágreinings fyrir dómi: 

  • Deiluaðilar eru andstæðingar

  • Lausn er ákveðin af dómara

  • Ábyrgð á niðurstöðu er færð yfir á dómstólinn

  • Ferlið er að mestu í höndum lögmanna og dómara

  • Áhersla er að mestu á lögfræðileg atriði

  • Ferlið er tímafrekt

  • Horft er til fortíðar

  • Niðurstaðan er yfirleitt sigur annars aðila og tap hins

Satt_ferli.PNG

Hvað fæ ég út úr sáttamiðlun? 

 

Sáttamiðlun byggist á ósk deiluaðila um lausn og miðar að því að hámarka ávinning allra aðila. Sáttamiðlarinn hjálpar aðilum að brúa bil milli hagsmuna og þarfa þeirra, án þess að persónuleg eða viðskiptaleg tengsl hafi neikvæð áhrif. Deiluaðilar gegna lykilhlutverki og hafa forræði á samningaviðræðum og ákvörðunum í málinu, þannig að hægt sé að finna lausn sem hentar þeirra aðstæðum með aðstoð sáttamiðlarans.

Kostnaður er yfirleitt lægri en þegar mál eru rekin fyrir dómstólum eða gerðardómi. Sáttamiðlun gengur jafnframt hraðar fyrir sig, meðal annars þar sem hægt er að skipuleggja fundi og fundarstað með sveigjanlegum hætti í samræmi við þarfir aðila.

Hvers vegna að velja sáttamiðlara?

Málarekstur er oft tímafrekur, kostnaðarsamur og getur haft mikil áhrif á tilfinningar deiluaðila. Í sáttamiðlun geta aðilar yfirleitt komist að lausn á skemmri tíma. Aðilar gera samning um sáttamiðlun við sáttamiðlara að eigin vali. Sáttamiðlarar eru sérmenntaðir og fara eftir siðareglum. Þeir hafa oft mikla reynslu af lausn ágreiningsmála og búa yfir bæði fræðilegri og hagnýtri þekkingu sem hjálpar aðilum að skoða ágreininginn frá fleiri sjónarhornum.

​Sátt, félag um sáttamiðlun

Sátt er fagfélag á sviði sáttamiðlunar sem vinnur að kynningu, þróun og eflingu sáttamiðlunar á Íslandi. Best er að hafa samband við félagið með tölvupósti. 

Netfang: satt@satt.is

Vertu með! 

Sátt sameinar fólk sem vill stuðla að framgangi sáttamiðlunar og uppbyggilegri úrlausn ágreiningsmála á Íslandi. Fagfólk getur sótt um aðild að félaginu og einstaklingar og fyrirtæki sem vilja styðja markmið þess geta gerst velunnarar.

© Sátt, félag um sáttamiðlun 2019 

bottom of page