Fagdeild sáttamiðlara
Eftirfarandi var samþykkt á aðalfundi Sáttar þann 31. mars 2017
Félagsmenn sem lokið hafa námi í sáttamiðlun geta einnig sótt um aðild að fagdeild sáttamiðlara innan Sáttar. Félagar í fagdeild Sáttar skulu hafa lokið háskólaprófi. Félagsmenn í fagdeild Sáttar geta óskað eftir því við stjórn félagsins að komast á lista yfir starfandi sáttamiðlara sem birtur er á heimasíðu félagsins.
Félagsmaður sem óskar eftir að fara á listann skal lýsa því yfir með skriflegum hætti að hann muni fylgja siðareglum Sáttar að öllu leyti og sinna starfi sínu sem sáttamiðlari af kostgæfni og fagmennsku. Jafnframt skal hann leggja fram ferilskrá og staðfestingu á námi á sviði sáttamiðlunar, auk upplýsinga um sérhæfingu á sviði sáttamiðlunar sem birtar eru undir nafni viðkomandi á heimasíðunni ef beiðni hans er samþykkt.
Sáttamiðlari skal hafa lokið viðeigandi menntun á sviði sáttamiðlunar sem nemur að lágmarki 5 ECTS einingum. Stjórn Sáttar skal meta í hvert sinn hvort að menntun félagsmanns uppfylli framangreind skilyrði, en einnig er heimilt er að líta til annarrar menntunar og reynslu sem nýtist sáttamiðlara í störfum sínum.
Umsókn í fagdeild
Eftirfarandi skref þarf til þess að klára umsókn í fagdeild Sáttar
1. Fylla út umsóknarform hér að neðan (google forms). Þær upplýsingar eru notaðar í prófíl þinn á heimasíðu félagsins.
2. Skrá sig á póstlista fagdeildarinnar.
3. Greiða félagsgjald fagdeildar sem er 8,500 kr.
1
Umsóknarform - smelltu hér
Þau gögn sem þarf til að klára formið eru:
-
Staðfesting á námi í sáttamiðlun
-
Mynd af þér
-
Undirrituð yfirlýsing um að sáttamiðlari muni fylgja siðareglum Sáttar. Vinsamlegast hlaðið niður eftirfarandi pdf skjali og skilið undirritaðu eintaki.
Ef af einhverjum ástæðum ekki næst að senda gögn í gegnum umsóknarformið má senda þau í tölvupósti á satt@satt.is
2
Skráðu nafn og netfang til að fá pósta sérstaklega ætlaða fagdeild Sáttar (ath ekki sami póstlisti og við skráningu í félagið)
3
Greiða kröfu í heimabanka fyrir árgjaldi í fagdeild Sáttar kr. 8,500.
Tekið getur nokkra daga fyrir kröfu að birtast í heimabanka. Ef þú þarft reikning fyrir greiðslunni vinsamlegast sendu okkur póst á satt@satt.is