Vinnustofa: Innleiðing sáttamiðlunar í einkaréttarmálum
fös., 22. nóv.
|Staðsetning auglýst síðar.
Um er að ræða einstakt tækifæri til þess að læra af reynslu Skota við innleiðingu sáttamiðlunar í einkaréttarmálum, hvað virkar og hvað virkar ekki, og bæta um leið þekkingu og færni á sviði sáttamiðlunar í verkfærakistuna sína.


Tími & staðsetning
22. nóv. 2019, 13:00 – 16:00
Staðsetning auglýst síðar.
Nánar
Vinnustofan veitir þátttakendum innsýn í sáttamiðlunarferlið og verkfæri sáttamiðlunar. Fjallað verður um það með hvaða hætti sé hægt að nýta sáttamiðlun í einkaréttarmálum, kosti þess og galla og hvaða leiðir séu færar við innleiðingu sáttamiðlunar. Þátttakendur fá einnig tækifæri til þess að spreyta sig á æfingum sem nýtast við úrlausn ágreiningsmála.
Fyrir hverja?
Vinnustofan er opin öllum þeim sem starfa eða tengjast dómskerfinu á einn eða annan hátt og vilja læra meira um hvernig hægt sé að nýta sáttamiðlun í einkaréttarmálum og vilja auka færni sína við úrlausn deilumála með sáttamiðlun.
Af hverju sáttamiðlun?
Sáttamiðlun hefur fjölmarga kosti umfram dómstólaleiðina. Um er að ræða fljótlegt og sveigjanlegt ferli sem getur boðið aðilum upp á fjölbreyttari lausnir en annars væru mögulegar, á ódýrari og einfaldari hátt. Hér er á ferðinni kjörið tækifæri til að koma og fræðast um með hvaða hætti hægt er að nýta aðferðafræði sáttamiðlunar til þess að hjálpa fólki að leysa ágreiningsmál og deilur með hjálp hlutlauss þriðja aðila. Sáttamiðlun býður upp á tækifæri til samtals og sameiginlegra lausna þar sem markmiðið er að ná sameiginlegum skilningi.
Leiðbeinendur
Graham Boyack, framkvæmdastjóri Scottish Mediation og Lilja Bjarnadóttir, formaður Sáttar.
Vinnustofan fer fram á ensku.
Verð: 14,900 á mann. Veittur er 10% afsláttur þegar 2 eða fleiri koma frá sama vinnustað.
Implementing Mediation in Civil Justice – Workshop with Graham Boyack
November 22, 2019 From 13:00-16:00
This is an unique opportunity to learn from the experience in Scotland how best to implement mediation in civil justice, to hear first hand what works and what doesn´t, and to add knowledge and skills in mediation to your toolbox.
The workshop will give participants insights into the mediation process and the tools mediators use. We will cover how to use mediation in civil justice and go over the benefits and challenges of using mediation to solve disputes in this area. Further we will discuss ways that are possible to start implementing mediation in public administration.
Participants:
This workshop is open to all who work within the area of civil justice, lawyers, judges and those who want to learn about how to bring mediation into civil justice in Iceland and want to increase their skills in solving conflicts by using mediation.
Why mediation?
There are multiple benefits of using mediation instead of going to court to adjudicate a dispute. Mediation is a fast and flexible process that can provide the parties with more options and solutions that otherwise would be out of reach, in a faster and cheaper way. This workshop is a great opportunity to learn about how the mediation process can be used to help people resolve conflicts and disputes with the help of a neutral third party. Mediation offers an opportunity for open discussion and understanding between parties to reach a mutually beneficial solution.
Instructors
Graham Boyack, director of Scottish Mediation and Lilja Bjarnadóttir, chairman of Sátt, the Icelandic Mediation Association.
The workshop will be conducted in english.
Price: 14,900 kr. per person. 10% discount for 2 or more people from the same workplace.